Afnám mismununar gagnvart konum

Miðvikudaginn 29. nóvember 1995, kl. 13:50:44 (1416)

1995-11-29 13:50:44# 120. lþ. 43.2 fundur 55. mál: #A afnám mismununar gagnvart konum# fsp. (til munnl.) frá utanrrh., Fyrirspyrjandi BH
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur


[13:50]

Fyrirspyrjandi (Bryndís Hlöðversdóttir):

Herra forseti. Ég þakka fyrir að fá að koma að stuttri athugasemd. Það var einungis vegna þess að hæstv. ráðherra benti á að jafnrétti væri ekki framfylgt með lögum einum saman. Þar er ég er honum alveg sammála en vildi bara vekja athygli á því að þessum samningi er einmitt ætlað að tryggja það að lögum sé framfylgt. Að því leyti er hann kannski öðruvísi en þær reglur sem hafa verið settar um þetta mál.