[22:42]
Árni M. Mathiesen (andsvar):
Herra forseti. Ég vil þá spyrja hv. 6. þm. Suðurl. að því hvort 12 milljarðar séu eitthvað nálægt því að vera þeir verulegu fjármunir sem 1. minni hluti treystir sér til að veita til að draga þessa atvinnugrein að landi eins og þeir orða það.