[15:41]
Mörður Árnason:
Herra forseti. Sá samningur sem við erum nú að samþykkja er vondur fyrir neytendur, vondur fyrir bændur en verstur fyrir framtíðina. Þjóðvaki hefur lagst gegn þessum samningi, komið með uppbyggilegar breytingartillögur við hann í samvinnu við aðra í stjórnarandstöðunni. Þær hafa ekki verið virtar viðlits. Ég segi nei.