Vatnalög

Föstudaginn 15. desember 1995, kl. 14:16:42 (2009)

1995-12-15 14:16:42# 120. lþ. 66.3 fundur 234. mál: #A vatnalög# (holræsagjald) frv., ÁRJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 66. fundur


[14:16]

Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég get tekið undir með hv. síðasta ræðumanni að það er full ástæða til að íhuga hvort ekki eigi að víkka þessa heimild og taka inn heimild til að lækka gjaldið eða fella það niður fyrir t.d. atvinnulausa eða sjúklinga. Ég legg til að það verði skoðað a.m.k. þegar lögin verða skoðuð. Ég tek undir að það er full ástæða til þess. Engu að síður fagna ég þeim áfanga sem hefur náðst með þessu frv.