Vörugjald af ökutækjum

Miðvikudaginn 29. maí 1996, kl. 17:41:56 (6801)

1996-05-29 17:41:56# 120. lþ. 152.4 fundur 533. mál: #A vörugjald af ökutækjum# (gjaldflokkar fólksbifreiða) frv. 48/1996, HG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 152. fundur

[17:41]

Hjörleifur Guttormsson:

Virðulegur forseti. Ég sit hjá við atkvæðagreiðslu um þetta frv. Ég gerði grein fyrir viðhorfi mínu í ræðu við 1. umr. málsins. Mér finnst að æskilegt hefði verið að líta á þessi mál í meira heildarsamhengi en ráðrúm hefur gefist til. Ég átta mig á því að áhersla er lögð á að hraða afgreiðslu málsins en ég vænti þess að tekið verði á þessum málum í framtíðinni út frá umhverfisþættinum ekki síður en öðrum þáttum sem þurfa að koma til skoðunar. Ég greiði því ekki atkvæði.