Iðnaðarráðherra (Finnur Ingólfsson):
Herra forseti. Það er alveg ljóst að farið verður eftir lögum og reglum og það eru lögin sem gilda í þessu, hv. þm. Málið verður tekið og skoðað ofan í kjölinn og farið eftir lagalegum farvegi. Það eru hins vegar rétt kjörin stjórnvöld á hverju svæði fyrir sig sem eru sveitarstjórnirnar sem hljóta að fara með það vald sem um er að ræða en ekki þrýstihópar sem geta orðið til víða í samfélaginu.