Viðbrögð ríkisstjórnarinnar við kröfum ASÍ

Mánudaginn 17. febrúar 1997, kl. 15:05:26 (3504)

1997-02-17 15:05:26# 121. lþ. 71.1 fundur 191#B viðbrögð ríkisstjórnarinnar við kröfum ASÍ# (óundirbúin fsp.), forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 71. fundur

[15:05]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Það er boðaður fundur kl. tólf á morgun með fjórum ráðherrum ríkisstjórnar og fulltrúum Alþýðusambandsins til að fara yfir það bréf og þá kröfu sem Alþýðusambandið hefur sett fram gagnvart ríkisstjórn. Fyrr en þeim fundi er lokið er ekki tímabært fyrir okkur að taka opinberlega endanlega afstöðu til einstakra krafna sem þeir hafa sett fram.