Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf.

Þriðjudaginn 22. apríl 1997, kl. 19:13:15 (5652)

1997-04-22 19:13:15# 121. lþ. 109.21 fundur 408. mál: #A Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf.# frv., SvG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 109. fundur

[19:13]

Svavar Gestsson (andsvar):

Ég mótmæli þessu ekki, herra forseti, enda reyndi ég það ekki. Ég tók þátt í því að skýra málið. Hins vegar segi ég það við hv. þm. og aðra viðstadda, hæstv. forseti: Ég tel að helmingaskiptaflokkarnir, Framsókn og Sjálfstfl., hafi ráðið úrslitum í þessu kerfi allan tímann. Sjálfstfl. hefur haft lag á því að stinga upp í fylgiflokka sína með einum eða öðrum hætti, við síðustu stjórnarmyndun með fimm ráðherrastólum, og hefur gefist vel, því miður, herra forseti.