Frsm. (Sólveig Pétursdóttir) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að eyða meiri tíma í þetta mál. Ég held að öll sjónarmið hafi komið fram sem skipta máli í þessari umræðu. Ég ítreka það að allshn. stendur að því að flytja þetta mál og ég vona svo sannarlega að hv. þm. Össur Skarphéðinsson, sem er þingmaður Reykvíkinga geti staðið með okkur í að huga að hagsmunum Grafarvogsbúa í þessu dæmi.