Stephansstofa

Föstudaginn 16. maí 1997, kl. 20:41:21 (6757)

1997-05-16 20:41:21# 121. lþ. 128.10 fundur 354. mál: #A Stephansstofa# þál., Frsm. EKG (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 128. fundur

[20:41]

Frsm. samgn. (Einar K. Guðfinnsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti á þskj. 1160 um till. til þál. um stofnun Stephansstofu. Samgn. fjallaði um málið og fékk á sinn fund Valgeir Þorvaldsson frá Vesturfarasetrinu Hofsósi. Umsagnir um málið bárust enn fremur frá Valgeiri Þorvaldssyni, Útflutningsráði Íslands, Háskólanum á Akureyri, stjórn Snorra Þorfinnssonar ehf. og Ferðamálaráði.

Samgn. leggur til að sérstaklega verði kannaðar leiðir til þess að efla starfsemi Vesturfarasetursins á Hofsósi með því að setja á stofn sérstaka skrifstofu er sjái um samskipti við fólk af íslenskum ættum í Bandaríkjunum og Kanada. Með þessu vill samgn. leggja sitt af mörkum til þess að ýta undir og efla þá mikilvægu starfsemi sem nú þegar fer fram á vegum Vesturfarasetursins á Hofsósi og hefur vakið aðdáun í hvívetna hjá öllum þeim sem hafa kynnt sér þetta mál og heimsótt safnið.

Í tillgr. sem nefndin hafði til umfjöllunar var kveðið á um allvíðtækara verksvið skrifstofunnar en nefndin hefur síðan komist að raun um auk þess sem ekki var gert ráð fyrir því að tengja þá starfsemi við Vesturfarasetrið á Hofsósi. Samgn. taldi hins vegar nauðsynlegt að skilgreina betur þá athugun sem ætti að gera og einskorða hana við Íslendinga í Vesturheimi. Enn fremur taldi nefndin eðlilegt að slík starfsemi yrði í tengslum við Vesturfarasetrið á Hofsósi. Hluti af þeirri starfsemi sem tillgr. mælir fyrir um er nú þegar unninn á Hofsósi á vegum Vesturfarasetursins auk þess sem þar hefur þegar verið hafinn undirbúningur vegna málsins að öðru leyti. Rétt er að nefna að samgn. hefur undir höndum teikningu af eins konar Stephansstofu í tengslum við Vesturfarasetrið sem forráðamenn Vesturfarasetursins höfðu þegar hafist handa um að undirbúa á síðasta ári.

En með hliðsjón af því að opinberir aðilar hafa einnig unnið að skráningu fólks af íslenskum ættum vestan hafs er eðlilegt að kannað sé hvernig tengja megi þá vinnu við það starf sem þegar er hafið og ætlunin er að efla enn frekar við Vesturfarasetrið á Hofsósi.

Nefndin mælir með samþykkt tillögunnar með eftirfarandi breytingu:

,,Tillögugreinin orðist svo:

Alþingi ályktar að fela forsætisráðherra að skipa nefnd til að kanna hvernig unnt sé að efla starfsemi Vesturfarasetursins á Hofsósi með því að setja á stofn sérstaka skrifstofu, kennda við Stephan G. Stephansson, sem sæi um samskipti við fólk af íslenskum ættum í Bandaríkjunum og Kanada.

Kristín Halldórsdóttir sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykk áliti þessu.

Kristján Pálsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Auk frsm. rita undir nefndarálitið og eru því samþykkir hv. þm. Magnús Stefánsson, Egill Jónsson, Stefán Guðmundsson, Árni Johnsen, Ragnar Arnalds, Guðmundur Árni Stefánsson og Ásta R. Jóhannesdóttir.