Lánasjóður íslenskra námsmanna

Föstudaginn 16. maí 1997, kl. 22:27:55 (6779)

1997-05-16 22:27:55# 121. lþ. 128.1 fundur 531. mál: #A Lánasjóður íslenskra námsmanna# (endurgreiðsla o.fl.) frv., SvanJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 128. fundur

[22:27]

Svanfríður Jónasdóttir:

Herra forseti. Framsfl. marglýsti því yfir á síðasta kjörtímabili, ekki síst fyrir kosningar en einnig eftir að þeir gerðust aðilar að núverandi ríkisstjórn, að námslán ættu ekki að bera neina vexti. Hér er, herra forseti, gerð sú hógværa tillaga að vextir verði aldrei hærri en það 1% sem innheimt er nú og í því skyni tekinn út úr lögunum sá möguleiki að vextir og námslán hækki upp í 3%. Við það hlýtur að verða mikill stuðningur í röðum þeirra engu síður en okkar. Ég segi því já.