Kristín Halldórsdóttir:
Herra forseti. Ég tel æðimarga aðra atvinnukosti vænlegri en mengandi stóriðju sem hefur neikvæð áhrif á þá ímynd hreinleika og ómengaðs umhverfis sem felur í sér mestu möguleikana til framtíðar. Fyrirhugaðar mengunarvarnir eru ekki í samræmi við ýtrustu kröfur um mengunarvarnir og ekki hefur verið staðið rétt og eðlilega að þessum undirbúningi. Ég er andvíg þessu frv. og segi nei.