Guðmundur Árni Stefánsson:
Virðulegur forseti. Hér er ekki um raunverulega vegáætlun að ræða. Hér er eingöngu verið að endurskoða og skera niður gildandi vegáætlun sem gildir fyrir árið 1995--1998. Hér er um fráleita málsmeðferð að ræða að öllu leyti og ég tek ekki þátt í henni og greiði því ekki atkvæði.