Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Borist hefur svohljóðandi bréf:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda og get því ekki sótt þingfundi næstu þrjár vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþingmaður Alþfl. í Reykv., Ásta B. Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Jón Baldvin Hannibalsson, 9. þm. Reykv.``
Ásta B. Þorsteinsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og er boðin velkomin til starfa.