Fjáraukalög 1996

Miðvikudaginn 11. desember 1996, kl. 15:38:09 (2050)

1996-12-11 15:38:09# 121. lþ. 40.2 fundur 48. mál: #A fjáraukalög 1996# frv., PHB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 40. fundur

[15:38]

Pétur H. Blöndal:

Herra forseti hér er lögð til hækkun á fjárveitingu til endurbyggingar á Kirkjustræti 8b og 10 úr 50 millj. kr. í 62 millj. kr. Þegar er búið að ráðstafa þessu fé og mótmælti ég því við 1. umr. að Alþingi færi ekki að fjárlögum og gæfi þannig fordæmi til annarra ríkisstofnana. Varla er unnt að hafna þessari fjárveitingu þar sem þegar er búið að ráðstafa henni. Ég mótmæli enn þessum vinnubrögðum og greiði ekki atkvæði.