Ásta R. Jóhannesdóttir:
Herra forseti. Hér er verið að skera niður bætur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð. Þessar bætur voru skertar mjög tilfinnanlega við síðustu fjárlagagerð og nú á enn að þrengja reglurnar. Þeir sem njóta þessara greiðslna eru þeir sem minnst mega sín í samfélaginu og ég mótmæli því að enn skuli eiga að höggva í sama knérunn. Ég segi nei.