Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1997

Fimmtudaginn 19. desember 1996, kl. 12:00:00 (2435)

1996-12-19 12:00:00# 121. lþ. 50.7 fundur 119. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum 1997# (breyting ýmissa laga) frv. 140/1996, RG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur

[12:00]

Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er svo sem ekki mikil þörf á því að koma hér upp aftur. Ég ætla bara að nefna það varðandi orð ráðherrans að það hefur aldrei hvarflað að mér að svo illa gæti verið komið fyrir ríkisstjórn að það væru byggð sambýli en reksturinn væri ekki settur í gang þegar þau stæðu tilbúin þó ég viti að það hafi oft dregist. Ég þekki mjög vel til bæði til rekstrar og framkvæmda í þessum málaflokki.