Ferill 443. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 443 . mál.


753. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um störf jaðarskattanefndar.

Frá Sighvati Björgvinssyni.



    Er fyrirhugað að jaðarskattanefnd ljúki störfum og ef svo er, hvenær er þess þá að vænta?
    Verða hugmyndir og tillögur nefndarinnar kynntar á yfirstandandi þingi?
    Er þess að vænta að frumvarp verði lagt fram á yfirstandandi þingi um sérstakar aðgerðir til þess að draga úr jaðarskattsáhrifum tekjutengingar í lífeyrismálum aldraðra og öryrkja, t.d. að því er varðar tekjutengingu heimilisuppbótar, sérstakrar heimilisuppbótar og annarra slíkra bótagreiðslna?