Guðný Guðbjörnsdóttir:
Virðulegi forseti. Ég vil þakka þessa fyrirspurn því að það er svo sannarlega áhyggjuefni hve atvinnuleysi kvenna er mikið. Ég vil í framhaldi af svari hæstv. félmrh. um ástandið á Norðurl. v. spyrja hann hvort hann telji ekki að atvinnustefna ríkisstjórnarinnar skýri að hluta til hve atvinnuleysi kvenna er mikið á því svæði og þar á ég bæði við áherslu ríkisstjórnarinnar á stóriðju og hins vegar á þróunina í sjávarútvegsmálum. Og ef svo er, hvort hann eða ríkisstjórnin fyrirhugi átak í atvinnumálum kvenna í þessu kjördæmi eða almennt.