Hollustuhættir

Þriðjudaginn 03. mars 1998, kl. 14:23:24 (4261)

1998-03-03 14:23:24# 122. lþ. 76.2 fundur 194. mál: #A hollustuhættir# (heildarlög) frv., ÁÞ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 76. fundur, 122. lþ.

[14:23]

Ásta B. Þorsteinsdóttir:

Herra forseti. Minni hluti umhvn. mun nú, að felldri þeirri tillögu hans að vísa frv. í heild sinni til ríkisstjórnarinnar, sitja hjá við lokaafgreiðslu málsins. Minni hlutinn mun styðja nokkur mikilsverð atriði þar sem komið hefur verið til móts við sjónarmið hans en jafnframt greiða atkvæði gegn nokkrum veigamiklum atriðum. Minni hlutinn hefur gert ítarlega grein fyrir áliti sínu.