Stofnun hlutafélags um síldarútvegsnefnd

Mánudaginn 16. mars 1998, kl. 15:57:33 (4693)

1998-03-16 15:57:33# 122. lþ. 88.20 fundur 558. mál: #A stofnun hlutafélags um síldarútvegsnefnd# frv., ÖS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 88. fundur, 122. lþ.

[15:57]

Össur Skarphéðinsson (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla ekki að ganga frekar á hæstv. sjútvrh. með þá bráðabirgðaskipan sem hann segir að muni verða á stjórn veiðanna. Ég fagna því að hann mun kynna það innan skamms. Ég vil hins vegar láta það koma fram að í fljótu bragði sé ég ekki að það þurfi að vera tengsl á milli göngumynsturs stofnsins annars vegar og fyrirkomulagi á stjórn veiðanna hins vegar. Í fljótu bragði tel ég að þar um sé að ræða óskylda hluti. Ég vænti þess að hæstv. ráðherra skýri þetta betur þegar hann leggur málið fyrir þingið innan skamms, eins og hann sagði.