Tekjuskattur og eignarskattur

Þriðjudaginn 17. mars 1998, kl. 13:43:19 (4696)

1998-03-17 13:43:19# 122. lþ. 89.2 fundur 524. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur# (vaxtabætur) frv., forsrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 89. fundur, 122. lþ.

[13:43]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég er ekki sammála því að verkalýðshreyfingin hafi hvergi komið að málinu þó að ekki hafi verið um formlegt samráð að ræða. Það er náttúrlega ljóst að frv. sem hæstv. félmrh. kynnti var byggt að verulegu leyti á ýmsum hugmyndum sem þar hafa komið fram.

Í annan stað er ég sammála hæstv. félmrh. að auðvitað eigi að hlusta á allar athugasemdir sem fram koma og taka eftir atvikum tillit til þeirra en ég sé ekki efni til þess að fresta hvorki því máli sem hæstv. félmrh. flutti né heldur þessu.