Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Hér er líka um mjög mikilvægt mál að ræða, till. til þál. um staðfestingu samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum, sem hefur áður verið rætt á Alþingi.
Ég vísa til athugasemda sem fylgja þessari þáltill. og legg til að að lokinni þessari umræðu verði henni vísað til hv. utanrmn.