Loftferðir

Þriðjudaginn 21. apríl 1998, kl. 15:49:31 (5633)

1998-04-21 15:49:31# 122. lþ. 108.5 fundur 201. mál: #A loftferðir# (heildarlög) frv. 60/1998, Frsm. meiri hluta EKG
[prenta uppsett í dálka] 108. fundur, 122. lþ.

[15:49]

Frsm. meiri hluta samgn. (Einar K. Guðfinnsson):

Virðulegi forseti. Frv. til laga um loftferðir sem hér hefur verið rætt kom til meðferðar hv. samgn. að nýju milli 2. og 3. umr. Nefndin hefur fjallað um málið.

Meiri hlutinn leggur hér fram framhaldsnefndarálit á þskj. 1182, ásamt breytingartillögum, og leggur til að frv. eins og það liggur fyrir eftir 2. umr., verði samþykkt með minni háttar breytingum. Lagt er til að orðið varðhald verði fellt brott úr 32. og 141. gr. frumvarpsins og er það í samræmi við frumvarp dómsmálaráðherra sem liggur fyrir þinginu um afnám varðhaldsrefsingar og stefnt er að afgreiðslu á nú í vor. Meiri hlutinn mælir með samþykkt frumvarpsins með svofelldum breytingum:

1. Við 32. gr. Orðin ,,varðhaldi eða`` í 4. mgr. falli brott.

2. Við 141. gr. Orðið ,,varðhaldi`` falli brott.

Undir þetta framhaldsnefndarálit skrifa auk undirritaðs hv. þm. Magnús Stefánsson, Kristján Pálsson, Egill Jónsson, Stefán Guðmundsson og Árni Johnsen.