Forseti (Guðni Ágústsson):
Forseti vill segja á þessu stigi að það er ástæðulaust að tefja tímann í umræðunni. Hann hefur gefið yfirlýsingar um þau atriði sem komu fram í forsn. í morgun og liggja fyrir um þinghaldið. Forseti hefur fullan hug á því fljótlega að komast að dagskrármálum enda bíða margir umræðunnar.