Framhald þingstarfa og þingfrestun

Mánudaginn 04. maí 1998, kl. 16:19:38 (6190)

1998-05-04 16:19:38# 122. lþ. 117.92 fundur 340#B framhald þingstarfa og þingfrestun# (aths. um störf þingsins), Forseti GÁ
[prenta uppsett í dálka] 117. fundur, 122. lþ.

[16:19]

Forseti (Guðni Ágústsson):

Forseti mótmælir þessum ómaklegu ummælum því að forsn. hefur á þessu kjörtímabili átt mjög gott samstarf við þingið allt ... (SvG: Og vill það ekki lengur.) og vill það áfram. Það hafa engin skilaboð komið inn á fund forsn. frá ríkisstjórninni. Það var bara blákalt mat forsn. í morgun að öll sú áætlun, sem fyrir lá stæðist ekki lengur vegna þeirra fjölmörgu mála sem liggja fyrir, hvort sem þau fara öll í gegnum þingið eða ekki. Það er allt annað mál.