Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):
Herra forseti. Á fundi mínum með fulltrúum námsmanna hef ég lýst því að ég er ekki sammála öllu því sem kemur fram í kröfum þeirra og ég tel að þarna sé um viðfangsefni að ræða sem eigi fyrst að ræða til hlítar á vettvangi Lánasjóðs ísl. námsmanna. Síðan verði menn að sjá hvað ber á milli aðila og sjá hvaða tölur það eru, fjárhagslegar tölur eða fjárlagatölur sem koma út úr þeirri niðurstöðu sem menn eru að ræða á vettvangi Lánasjóðs ísl. námsmanna.