Menntakerfið í Mexíkó

Mánudaginn 11. maí 1998, kl. 15:34:06 (6440)

1998-05-11 15:34:06# 122. lþ. 124.1 fundur 372#B menntakerfið í Mexíkó# (óundirbúin fsp.), menntmrh.
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur, 122. lþ.

[15:34]

Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):

Herra forseti. Ég hef aldrei haft tækifæri til þess að fara til Mexíkó þannig að ég hef ekki haft tækifæri til að skoða þar einstakar skólastofnanir eða menntastofnanir. Ég hef hins vegar lesið um menntakerfið í Mexíkó og það er athyglisvert að heyra mat forseta Íslands á því.

Ég mun ekki skýra hv. þm. frá viðræðum mínum við forseta Íslands um þetta mál eða önnur.