Gísli S. Einarsson:
Herra forseti. Með samþykkt þessarar greinar munu auðlindir í eigu þjóðarinnar færast til einkaaðila. Eins og ég kom inn á í máli mínu í upphafi er hér um að ræða mestu eignatilfærslu frá almenningi til einkaaðila í Íslandssögunni. Ég get engan veginn stutt þetta og segi nei, herra forseti.