Fyrirspyrjandi (Tómas Ingi Olrich):
Herra forseti. Hér er komið að síðustu fyrirspurn minni til hæstv. viðskrh., sem er svohljóðandi:
Hefur ráðherra upplýsingar um markaðshlutdeild stærstu greiðslukortafyrirtækja landsins?
Telur ráðherra ástæðu til, með tilliti til markaðshlutdeildar þessara fyrirtækja, að setja lög sem takmarka umsvif og starfsemi þessara fyrirtækja umfram það sem samkeppnislög segja til um?