Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég hef enn ekki fengið svar við þeirri spurningu sem ég lagði fram áðan, bæði til hv. þm. Össurar Skarphéðinssonar og síðan til hv. þm. Láru Margrétar Ragnardóttur um það hvort þau séu á móti þeirri samhæfingu sem hefur orðið á Vestförðum og Reykjavíkursvæðinu. Eru þau á móti þeim tillögum sem heimamenn hafa gert á Austfjörðum varðandi sameiningu stjórna? (ÖS: Sem var komið fram fyrir einu og hálfu ári og ekkert verið gert.)