Ásta R. Jóhannesdóttir:
Herra forseti. Það hefur komið fram í vinnunni í heilbr.- og trn. að vegna fjárskorts hjá landlækni hefur ekki verið hægt að vinna úr mikilvægum upplýsingum sem hafa safnast til landlæknisembættisins, sem þörf er að byggja á þegar vinna við heilbrigðis- og tryggingamálin er til umræðu og þegar verið er að taka ákvarðanir. Ég tel því mjög mikilvægt að það verði staðið betur að fjárveitingum til landlæknisembættisins. Ég segi já.