Frsm. meiri hluta fjárln. (Jón Kristjánsson):
Herra forseti. Þó frv. til fjárlaga fyrir árið 1998 sé tekið á dagskrá, samkvæmt ákvæðum þingskapa, þá hefur fjárln. ekki lokið athugun sinni á frv. Því legg ég til, herra forseti, að ég fái að fresta ræðu minni, og jafnframt að umræðunni verði frestað til þess tíma sem forseti telur hagkvæman fyrir frekari umræðu um málið.