Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1998

Föstudaginn 19. desember 1997, kl. 12:53:19 (2769)

1997-12-19 12:53:19# 122. lþ. 49.10 fundur 323. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum 1998# (breyting ýmissa laga) frv. 130/1997, félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 49. fundur

[12:53]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Atvinnuleysisbætur munu að sjálfsögðu taka breytingum með hliðsjón af launaþróun í landinu. Ég treysti mér ekki til þess að kveða fastar að orði en þetta en mér finnst að það gefi bara auga leið að atvinnuleysisbætur muni taka breytingum með hliðsjón af launaþróun.