Ferill 306. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 380 – 306. mál.
Fyrirspurn
til viðskiptaráðherra um bifreiðakostnað bankanna.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.
1. Hvernig skiptast greiðslur fyrir afnot af bifreiðum starfsmanna, sem fram komu í svari ráðherra við fyrirspurn á þskj. 32, milli kynja og stöðuheita, sundurliðað eftir árum og heildargreiðslum einstakra banka á tímabilinu 1. janúar 1993 til 10. október 1997?
2. Eru einstaklingsbundnir samningar, kjarasamningar eða almennar reglur að baki slíkum greiðslum og hvaða mat liggur þá til grundvallar?
Skriflegt svar óskast.