Ferill 314. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 398 – 314. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um breytingar á vasapeningagreiðslum til lífeyris
Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.
1. Hvernig hafa reglur um vasapeninga lífeyrisþega á stofnunum og upphæðir þeirra breyst sl. fimm ár?
2. Hversu margir
a. ellilífeyrisþegar og
b. öryrkjar
á stofnunum hafa fengið vasapeninga greidda hvert undanfarinna fimm ára?
3. Hversu margir
a. ellilífeyrisþegar og
b. öryrkjar
utan stofnana hafa fengið greidda vasapeninga hvert undanfarinna fimm ára?
Skriflegt svar óskast.