Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir að hafa áhuga á því að málið nái afgreiðslu fyrir þinglok. Þar deilum við áhuga.
Ég vil láta þess getið að þó að stjórnarandstaðan hafi ekki beinlínis átt sæti eða fulltrúa í þeirri vinnunefnd sem endurskoðaði lögin þá var leitað mjög eftir viðhorfi stjórnarandstöðunnar við þessa endurskoðun. Þeir voru kvaddir til þó að þeir ættu ekki sæti í vinnuhópnum.