Frsm. efh.- og viðskn. (Einar Oddur Kristjánsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. efh.- og viðskn. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 10/1993, um verðbréfasjóði, með síðari breytingum. Það er á þskj. 895, en brtt. eru á þskj. 896.
Með frumvarpinu er lagt til að unnt verði að stofna verðbréfasjóði sem eingöngu verði markaðssettir hér á landi og hafi meira svigrúm til fjárfestinga en felast í hinum ströngu ákvæðum verðbréfasjóðatilskipunar ESB.
Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með smávægilegum breytingum í 5. efnismgr. 4. gr. frumvarpsins sem kveða á um að það sé alveg skýrt hvernig að þessu skuli staðið.
Undir þetta nál. skrifa allir nefndarmenn efh.- og viðskn., hv. þm. Vilhjálmur Egilsson, Ágúst Einarsson, Steingrímur J. Sigfússon, Einar Oddur Kristjánsson, Árni R. Árnason, Valgerður Sverrisdóttir, Pétur H. Blöndal, Gunnlaugur M. Sigmundsson og Sigríður Jóhannesdóttir.