Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):
Forseta hefur borist ósk frá þingflokki Samfylkingarinnar um mannaskipti í nefndum, samkvæmt 16. gr. þingskapa. Breytingarnar eru þær að í efh.- og viðskn. taki Sigríður Jóhannesdóttir sæti Svavars Gestssonar. Í sérnefnd um stjórnarskrármál taki Bryndís Hlöðversdóttir sæti Svavars Gestssonar og í utanrmn. verði Ragnar Arnalds varamaður í stað Svavars Gestssonar. Ef ekki eru athugasemdir við þetta skoðast það samþykkt.