Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):
Hæstv. forseti. Efh.- og viðskn. fjallaði um þetta mál samhliða því sem ég hef nýlokið að mæla fyrir. Nefndin fékk á sinn fund Ólaf Ísleifsson frá Seðlabanka Íslands en sendi málið ekki út til umsagnar.
Stofnskrárbreyting sú er hér um ræðir var samþykkt af yfirstjórn sjóðsins á ársfundi Alþjóðagaldeyrissjóðsins í Hong Kong í september 1997 og efh.- og viðskn. telur sjálfsagt að samþykkja frv.