Sólveig Pétursdóttir:
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur fjallað um kjörbréf 2. varaþm. Alþfl. í Vestf., Kristínar Jóh. Björnsdóttur, sem landskjörstjórn gaf út í dag en 1. varaþm. flokksins í kjördæminu, Ægir E. Hafberg, getur ekki tekið sæti að þessu sinni á Alþingi. Nefndin hefur kynnt sér kjörbréfið, ekki fundið neitt athugavert og leggur til að það verði samþykkt.