Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):
Herra forseti. Ég hygg að það fari ekki saman að standa fyrir sjálfstæðum rekstri, atvinnurekstri, bera ábyrgð á honum, taka á sig skuldbindingar sem slíku fylgir og vera gjaldþrota. Á hinn bóginn hygg ég að oft sé hægt að leita samninga við kröfuhafa um að þeir með yfirlýsingum sínum dragi kröfur sínar til baka og þá er gjaldþrotið sjálfkrafa afturkallað. Ég hygg að það sé sú leið sem viðkomandi verður að fara.