Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (um fundarstjórn):
Virðulegi forseti. Það hefur allt komið fram hjá forseta sem hér áður hefur verið rætt. Dómsmrh. svaraði því áðan að frv. um persónuvernd hefur farið í gegnum ríkisstjórn og liggur nú hjá þingflokki Sjálfstfl. Við höfum þegar afgreitt það frá þingflokki Framsfl. Það hefur þegar komið fram. Og það hefur líka þegar komið fram í þessari umræðu hjá hv. þm. Hjörleifi Guttormssyni að enginn hefur vit á gagnagrunnsfrv. nema hann, hv. þm. (HG: Rétt.)