Bryndís Hlöðversdóttir:
Herra forseti. Hér kemur til atkvæða eitt vandræðalegasta og um leið umdeildasta ákvæði frv., ákvæðið um aðgangsnefndina svokölluðu. Hún brýtur í bága við samkeppnisreglur EES-samningsins, hún ógnar vísindafrelsinu af ástæðum sem farið hefur verið ítarlega yfir í umræðunni. Meiri hlutinn hefur ekki enn fundið lausn á því vandamáli sem birtist í þessari grein. Ég greiði því atkvæði gegn greininni.