Lífeyrissjóður sjómanna

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 19:48:10 (2074)

1998-12-10 19:48:10# 123. lþ. 37.10 fundur 324. mál: #A Lífeyrissjóður sjómanna# (heildarlög) frv., ÁE (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[19:48]

Ágúst Einarsson (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir svarið. Brýnt er að við í þingnefndinni áttum okkur aðeins á tímatakmörkunum um þetta mál. Ég endurtek aðeins það sem ég sagði áðan að ég er þess fullviss að allir nefndarmenn munu reyna að vanda sig eins og hægt er varðandi þetta mál og reyna að taka tillit til sérstöðu þess þó án þess á nokkurra handa máta að draga úr hraða í vinnubrögðum sem er nauðsynlegt að viðhafa.