Lífeyrissjóður sjómanna

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 20:47:41 (2081)

1998-12-10 20:47:41# 123. lþ. 37.10 fundur 324. mál: #A Lífeyrissjóður sjómanna# (heildarlög) frv., Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[20:47]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Um fundahaldið vill forseti setja þetta: Umræður hafa nú staðið um það bil tveimur klukkustundum lengur en ætlað var þegar dagurinn var skipulagður. Þá var ætlunin að ljúka umræðu um öll dagskrármálin. Það er ljóst að sex af dagskrármálunum verða ekki tekin fyrir á þessum fundi. Eftir er að ljúka umræðu um það mál sem nú er til umræðu og eitt mál enn, þ.e. 12. dagskrármálið.

Forseti fer þess nú í mikilli vinsemd á leit við þá hv. þingmenn sem eiga eftir að tala að þeir stytti mál sitt svo sem þeir helst geta.