Fjárlög 1999

Laugardaginn 19. desember 1998, kl. 15:17:13 (2746)

1998-12-19 15:17:13# 123. lþ. 46.15 fundur 1. mál: #A fjárlög 1999# frv. 165/1998, StB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 123. lþ.

[15:17]

Sturla Böðvarsson (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir þær upplýsingar sem hér eru veittar. Ég held að sá samningur sem ráðherrann gat um skipti máli og ég fór nokkuð yfir það í ræðu minni. Hins vegar er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því að allir slíkir samningar sem gerðir eru hljóta að koma til endurskoðunar og sérstakrar yfirferðar í hvert eitt sinn sem fjárlög eru afgreidd þannig að slíkir samningar eru að sjálfsögðu gerðir með fyrirvara um afgreiðslu Alþingis á fjárlögum.