Ferill 88. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 88 — 88. mál.



Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um fangaverði.

Frá Kristínu Ástgeirsdóttur.



     1.      Hversu margar konur gegna nú störfum fangavarða:
       a.      í fangelsum fyrir karla,
       b.      í fangelsum fyrir konur,
       c.      á lögreglustöðvum þar sem er skammtímavistun fanga?
     2.      Hvert er hlutfall kvenna af fjölda fangavarða?
     3.      Er það stefna ráðherra að fjölga konum í röðum fangavarða, bæði við gæslu karla og kvenna?