Ferill 315. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 380 — 315. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um framkvæmd umferðaröryggisáætlunar.
Frá Bryndísi Hlöðversdóttur.
1. Hefur af hálfu stjórnvalda verið gerð fjárhags- og framkvæmdaáætlun í samræmi við markmiðin sem sett voru í umferðaröryggisáætlun fyrir árin1997–2000?
2. Ef svo er, hvernig hljóðar sú áætlun með tilliti til einstakra verkefna og fjárframlaga til þeirra?
Skriflegt svar óskast.