Ferill 319. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 386  —  319. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um verkefni verkfræðistofa.

Frá Guðmundi Hallvarðssyni.



     1.      Hvaða verkfræðistofur hafa unnið fyrir opinberar stofnanir frá árinu 1991? Hvaða verkefnum hafa þær sinnt?
     2.      Hverjar voru heildargreiðslur til verkfræðistofa á fyrrnefndu tímabili? Hvernig skiptist sú fjárhæð á milli verkfræðistofa:
                  a.      eftir einstökum verkefnum,
                  b.      eftir ráðuneytum?


Skriflegt svar óskast.
























Prentað upp.